Um Vínvini

Vínvinir er ungt en ört vaxandi fyrirtæki í innflutningi og sölu áfengis. Í byrjun var aðaláhersla lögð á innflutning frá Portúgal en fljótlega bættist Spánn við og síðan hafa fleiri lönd tínst inn eitt af öðru. Innan vébanda fyrirtækisins er margra ára reynsla í sölu á vínum og öðru áfengi. Vínin frá Vínvinum eru þegar farin að láta á sér kræla í vínbúðunum en auk þess bjóðum við upp á mikið úrval af vínum í sérpöntunum. Við eigum hversdagsvínin, hátíðarvínin og veisluvínin í öllum verðflokkum. Bæði hvít, rauð, rósa, freyði og púrt.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á [email protected] eða hafa beint samband við Duffa í síma 856-5300.