Alto Horizonte er lítil vínframleiðsla í Sierra de Gredos í Ávilla innan Castilla y León héraðsins á Spáni, stofnuð 2015 af Aurelio García og Micaela Rubio. Þau rækta um 8 hektara vínekrur í 1.000–1.100 m hæð, á granítsendnum jarðvegi sem gefur Garnacha- og Albillo Real-þrúgum fínan, ilmandi og sýruríkan karakter.
Allt er handunnið með lágmarks inngripum og sjálfgerjun, í takt við vistvæna hugsun. Vínin endurspegla sérkenni svæðisins — létt í byggingu, með einkennum af rauðum berjum, frískandi sýru og steinefnatón. Með starfi sínu stuðla þau að endurreisn gömlu vínekranna í Gredos og skapa vín sem sameina hefð og nútímalegt handverk.
-
Altitud Garnacha
3.543kr. Read more -
Alto de La Cruz Garnacha
5.132kr. Read more

Ausàs Bodegas y Viñedos er persónulegt verkefni Xavier Ausàs, fyrrverandi fyrrum yfirmaður vínframleiðslu hjá Vega Sicilia, sem stofnaði eigin víngerð árið 2016 í Ribera del Duero. Með djúpan skilning á svæðinu og fleiri áratuga reynslu, stefnir Xavier Ausàs á að framleiða vín sem endurspegla svæðið með sérstakri nálgun.
Markmið víngerðarinnar er að framleiða vín með hreinan ilm, frískleika og fínleg tannín sem endurspegla glæsileika. Þekktasta vínið, Ausàs Interpretación, er unnið úr þrúgum frá vínekrum með fjölbreyttan jarðveg, gerð að víni aðskilið til að varðveita sinn sérstaka karakter áður en þeim er blandað saman í eina heildstæða túlkun á terroir-i svæðisins.
-
Ausàs Interpretación
7.565kr. Read more

Aveleda var stofnað af Manoel Pedro Guedes árið 1870 og hefur verið leitt áfram af 5 kynslóðum Guedes fjölskyldunnar í rúm 150 ár. Framleiðslan er í Portúgal, fyrst og fremst í Vinho Verde héraðinu en einnig í Duoro, Lisboa, Bairrada og Algarve. Aveleda er þekkt fyrir fersk, sýru‐ og ávaxtarík Vinho Verde vín, unnin úr þrúgum eins og Loureiro, Alvarinho og Arinto.
Aveleda leggja sérstaka áherslu á sjálfbærni, verndun líffræðilegrar fjölbreytni og hágæða vínrækt.
-
12 Knights Opulent Red
2.661kr. Read more -
Casal Garcia 375 mL
1.038kr. Read more -
Casal Garcia Fruitzy Peach
1.461kr. Read more -
Casal Garcia Fruitzy Strawberry
1.460kr. Read more -
Casal Garcia Vinho Verde 8,5%
1.769kr. Read more -
Mandriola de Lisboa
2.482kr. Read more -
Mandriola de Lisboa Colheita Selecionada
2.214kr. Read more
Baricci er fjölskyldurekin Brunello-di-Montalcino víngerð, stofnuð árið 1955 af Nello Baricci þegar hann keypti Colombaio di Montosoli í Montalcino, sem síðar varð hluti af Brunello DOCG árið 1966. Sveitin spannar um 12 hektara, þar af 5 hektarar undir vínvið á Montosoli-hæðinni – frábærri Cru með steinríkan jarðveg sem gefur vínunum ljúfan, grípandi karakter.
Baricci hefur frá upphafi lagt áherslu á hefðbundin vinnubrögð: handuppskeru, nákvæma gerjun í ryðfríu stáli og þriggja ára þroskun í stórum slavneskum eikartunnum. Í dag stýra Federico og Francesco Buffi víngerðinni með stöðugri trú á hefðir, agaðan stíl og einlæga virðingu fyrir terroir-inu og framleiða vín sem sameina silkimjúka áferð við djúpan og flókinn bragðkarakter.
-
Baricci Brunello Di Montalcino
7.920kr. Read more -
Baricci Ólífuolía
3.674kr. Read more -
Baricci Rosso Di Montalcino
5.250kr. Read more

Bodegas Celaya er fjölskyldurekin víngerð í La Roda, í Albacete héraði innan D.O. La Mancha á Spáni. Hún var stofnuð árið 1927 og er nú í höndum þriðju kynslóðar innan fjölskyldunnar. Með rótgróinni sögu í landbúnaði og víngerð, hefur Celaya þróast og orðið einn af helstu framleiðendum í sínum heimahéraði, án þess að fórna uppruna sínum fyrir nýjar leiðir.
-
Bayanegra Sauvignon Blanc
2.482kr. Read more -
Bayanegra Tempranillo
2.393kr. Read more

Bodega Micaela Rubio, í Castilla La Mancha, er lítil vínframleiðsla stofnuð af Micaela Rubio og Aurelio García. Þau leggja áherslu á Bobal-þrúguna úr gömlum vínekrum við fljótið Júcar, þar sem jarðvegur með stórgrýti gefur vínunum einstakt terroir.
Þrúgurnar eru unnar aðskildar eftir jarðvegi og gerjaðar með náttúrulegri gerjun, með lágmarks inngripi. Útkoman eru fínleg vín úr Bobal: blómkennd, krydduð, með silkimjúkum tannínum og ferskum sýrum.
-
Mikaela Bobal
4.945kr. Read more -
Mikaela El Reflejo
3.354kr. Read more -
Mikaela La Infanta
8.891kr. Read more

Bodegas Nivarius er fyrsta víngerðin í Rioja sem sérhæfir sig alfarið í hvítvínum. Hún er staðsett í Nalda í Rioja Alta, þar sem 61 hektari vínekra á um 800 metra hæð gefur þrúgunum frískleika, góða sýru og ávaxtakenndan karakter. Nivarius leggur áherslu á að endurvekja hefðbundnar tegundir eins og Maturana Blanca, auk Viura og Garnacha Blanca. Hver vínekrupartur er gerður að víni aðskilið til að fanga sérkenni jarðvegsins, með sjálfbærni og lágmarks inngripum að leiðarljósi. Útkoman eru hvítvín sem sameina ferskleika, upprunalegt terroir og nútímalega túlkun á Rioja.
-
Nivarius
2.886kr. Read more -
Nivarius Lia Pet Nat Cava Rosé
3.096kr. Read more -
Nivarius Valdesabril
7.455kr. Read more

Bodegas Proelio, stofnað árið 2012 af Palacios-fjölskyldunni í Rioja Alta, byggir starf sitt á gömlum vínekrum í hæð og norðurstefnu sem gefa vínunum styrk og sérstöðu. Nafnið „Proelio“ merkir „bardagi“ og vísar til áskorana í ræktuninni. Þrúgur eins og Tempranillo, Garnacha og Graciano eru ræktaðar í kalk- og leir jarðvegi, sem veitir vínunum ferskleika og dýpt. Víngerð fer fram í eik og steyputönkum til að undirstrika uppruna og terroir. Útkoman eru rauðvín með karakter, jafnvægi og elegans sem endurspegla landslagið og hefð Rioja.
-
Proelio Rioja Gran Reserva
7.663kr. Read more -
Proelio Rioja Reserva
3.737kr. Read more

Bodegas Trus, stofnað árið 1999 af Palacios Vinos de Finca, er víngerð í hjarta Ribera del Duoro á Spáni. Nafnið TRUS stendur fyrir „Tierra, Roble, Uva, Sol‟ eða „Jörð, Eik, vínber og Sól‟ sem mynda kjarnann í vínframleiðslu þeirra. Bodegas Trus ræktar um 60 hektara af vínekrum, staðsettar á 14 ólíkum svæðum með mismunandi jarðvegssamsetningu og loftslagi.
Allt vín þeirra er framleitt úr 100 % Tinto Fino (Tempranillo) og unnið með hefðbundnum aðferðum: þrúgurnar eru handtíndar og valdar, gerjun fer fram í frönskum eikarkerum („tinos“) með eigin geri, og vínið þroskast síðan í frönskum eikartunnum. Markmiðið er að skapa vín sem endurspegla uppruna sinn af hreinskilni og ná töfrandi jafnvægi þegar þau eldast.
-
Pico De Luyas
7.874kr. Read more -
Trus Punto Geodésico
5.984kr. Read more -
Trus Ribera del Duero Crianza
4.093kr. Read more -
Trus Ribera del Duero Reserva
5.339kr. Read more -
Trus Ribera del Duero Roble
3.381kr. Read more
Carodorum Bodegas er ungt fjölskyldurekin víngerð rétt utan Toro svæðisins á Spáni. Hún er stofnuð af bræðrunum Guillermo og Luis Ángel Diez Rodríguez byggt á vínræktararfleiðinni frá móður þeirra Carmen Rodríguez. Vínframleiðslan hófst formlega árið 2003 og sækist eftir að sameina hefð og nútímatækni með handverkslegri nálgun og litlu framleiðslumagni. Þeir leggja áherslu á lítið inngrip og stunda lífræn vinnubrögð, án skordýraeiturs og áburðar, þó án formlegrar vottunar.
Carodorum vín hafa hlotið mjög góða dóma, þar á meðal 96 stig fyrir „Selección Especial‟ árið 2017 og fleiri yfir 90 stig hjá Wine Enthusiast og öðrum gagnrýnendum. Meðalframleiðsla er um 70.000 flöskur á ári sem að mestu fer á alþjóðlegan markað, einkum til Bandaríkjanna, Kanada, Evrópu, Brasilíu og Asíu.
-
Carodorum Autor Toro
4.004kr. Read more -
Carodorum Issos Crianza
3.471kr. Read more -
Carodorum Selección
5.073kr. Read more

Castello di Volpaia er staðsett í miðaldabænum Volpaia í Chianti Classico og hefur verið í eigu fjölskyldunnar Mascheroni Stianti frá 1966. Þar eru 46 hektarar af lífrænt ræktuðum vínekrum á 400–650 metra hæð, sem teljast meðal hæstu í svæðinu. Sangiovese er í aðalhlutverki, en með vönduðu klónavali og hefðbundnum aðferðum skapa þau vín sem endurspegla bæði arfleifð og sérstöðu svæðisins. Þekktustu vínin eru meðal annars Coltassala, Il Puro og Balifico, sem sýna hvernig Volpaia sameinar hefð, terroir-ið og nákvæma víngerð í hágæðavín.
-
Volpaia Chianti Classico
4.005kr. Read more -
Volpaia Class Coltassala
7.031kr. Read more

DFJ Vinhos er Portúgölsk víngerð sem var stofnuð árið 1998, þegar vínræktarþekking José Neiva Correia var sameinuð reynslu D-F Wine Shippers (þannig bættist J-ið við). Eftir 2005 varð José eigandi og hafði þá umráða fjölbreyttu úrvali af vínum, allt frá Douro til Algarve.
Fyrirtækið ræktar um 250-400 hektara vínekrur, aðallega í Lisboa svæðinu, með áherslu á sjálfbærni og góð gæði miðað við verð. DFJ Vinhos flytur nú yfir 99% af framleiðslu sinni (um 10 milljónir flöskur) til fleiri en 50 landa.
DFJ hafa hlotið fjölmörg verðlaun – yfir 1.000 síðan 2010 og fjölmörg árið 2021 – meðal annars fyrir bestu vín heims að verðmæti (Best Buy) ásamt sérstökum verðlaunum í öðrum alþjóðlegum keppnum.
-
Always on Friday Pinot Noir
2.572kr. Read more -
Escada Arinto Reserva
2.389kr. Read more -
Escada Touriga Nacional
2.484kr. Read more -
Paxis Arinto
2.224kr. Read more -
Paxis Bulldog Lisboa
2.482kr. Read more
Lua Cheia – Saven hóf starfsemi árið 2009 með sameiginlegri sýn frumkvöðulsins Manuel Dias og víngerðarmannsins Francisco Baptista. Þau byggðu merki sitt „lua cheia“ („fullt tungl“) á gagnstæðri nálgun: fyrst markaður, svo vín, síðan vínekrur.
Framleiðslan spannar öll helstu vínsvæði í Portúgal, þar á meðal Douro, Vinho Verde, Dão og Alentejo. Þau eiga sjálf Quinta do Bronze í Douro, vínekrur í Monção og Melgaço (Vinho Verde), og hafa jafnframt framleiðslu í Dão og Alentejo.
Þeir leggja áherslu á gæði miðað við verð – vín sem endurspegla uppruna sinn, í samræmi við markaðskröfur.
-
Andreza extra virgin ólífuolía
2.400kr. Read more -
Andreza Grande Reserva
4.093kr. Read more -
Andreza Reserva
2.925kr. Read more -
Andreza Reserva HV
2.671kr. Read more -
Insurgente
2.535kr. Read more -
Lua Cheia Reserva Especial
3.202kr. Read more -
Nostalgia
2.937kr. Read more -
Quinta do Bronze
5.763kr. Read more -
Quinta do Bronze Plagao
9.345kr. Read more -
Secretum
3.550kr. Read more -
Tyto Alba Branco
2.848kr. Read more -
Tyto Alba Tinto
3.114kr. Read more
Marqués de Murrieta er ein elsta og virtasta víngerðin í Rioja, stofnuð árið 1852 af Luciano de Murrieta, sem aflaði sér víngerðarþekkingar í Bordeaux og framleiddi fyrstu Rioja-vínin sem flutt voru úr landi.
Hjarta starfseminnar er víngerðarkjallarinn í Castillo de Ygay, umlukinn um 300 hekturum af vínekru. Frá árinu 1983 hefur Cebrián-Sagarriga fjölskyldan stýrt fyrirtækinu, þar sem Vicente Dalmau Cebrián-Sagarriga leiðir ásamt framkvæmdastjóranum María Vargas.
Vínin njóta mikillar virðingar fyrir gæði sín, meðal annars Castillo Ygay Gran Reserva Especial, Dalmau og Capellanía, sem endurspegla jafnvægi milli langrar hefðar og nútímalegra víngerðaraðferða.
Stefna Marqués de Murrieta byggist á að varðveita arfleifð Rioja Alta svæðisins, rækta vín með sterka tengingu við „terroir-ið“ og skapa vín sem eru bæði tímatengd og tímalaus, með megináherslu á nákvæmni, þolinmæði og virðingu fyrir hráefninu.
-
Capellania
11.124kr. Read more -
Castillo Ygay Gran Reserva Especial
31.067kr. Read more -
Dalmau
28.000kr. Read more -
La Comtesse Albariño
14.685kr. Read more -
Marqués de Murrieta Gran Reserva
7.990kr. Read more -
Marqués de Murrieta Primer Rosé
5.985kr. Read more -
Marqués de Murrieta Reserva
4.708kr. Read more -
Pazo de Barrantes Albariño
6.642kr. Read more

Martha’s er fjölskyldurekið portvínhús í Douro með rætur aftur til 1727. Þau stjórna allri framleiðslunni sjálf, frá víngarði til flösku, og eru þekkt fyrir hágæða Tawny Ports (10, 20, 30 og 40 ára), auk ruby, hvítu porti og Moscatel do Douro. Í dag leiðir ný kynslóð, þar á meðal systkinin Rita og Pedro Marta, fyrirtækið áfram með blöndu af hefð og nútímalegum vinnubrögðum. Martha’s sameinar djúpa fjölskylduarfleifð og terroir Douro með alþjóðlegri sýn og er nú orðið eitt af áberandi portvínshúsum á mörkuðum víða um heim.
-
Decanter 10 ára Tawny Tube
6.299kr. Read more -
Martha’s Colheita Branco
2.797kr. Read more -
Martha’s Lágrima white
5.249kr. Read more -
Martha’s Special Reserve
6.824kr. Read more -
Martha’s Tawny 20 ára Tube 20%
10.499kr. Read more -
Martha’s Tawny 40 ára Tube 19.5%
23.100kr. Read more -
Martha’s Touriga Nacional Grande Reserva
5.849kr. Read more -
Martha’s Vinha do Legado Grande Reserva
6.697kr. Read more
Monte da Raposinha er fjölskyldurekin víngerð í norðurhluta Alentejo, nálægt Montargil í Portúgal. Nafnið „Raposinha“ (litli refur) er fengið frá föður Rosário Ataíde, núverandi eiganda, sem gaf henni þetta gælunafn. Sveitin spannar um 150 hektara, þar af eru um 15 hektarar undir vínvið, með hluta lífrænt vottað. Monte da Raposinha framleiðir um 120.000 flöskur á ári og hver flaska endurspeglar einstakt terroir vínekranna og sýnir þá elju og ástríðu sem liggur að baki hverjum árgangi.
Helsta markmið Monte da Raposinha er að framleiða gæða- og persónuleg vín sem endurspegla einstakt terroir svæðisins. Sjálfbær og vistvæn ræktun er í forgrunni, með virðingu fyrir náttúru og vistkerfi.
-
Monte Da Raposinha Branco
3.116kr. Read more -
Monte da Raposinha Grande Reserva
4.462kr. Read more -
Monte da Raposinha Reserva Chardonnay
4.004kr. Read more -
Monte da Raposinha Tinto
2.848kr. Read more -
Raposinha Branco
2.757kr. Read more -
Raposinha Rosé
2.757kr. Read more

Wine & Soul er Portúgölsk víngerð stofnuð árið 2001 af Sandra Tavares da Silva og Jorge Serôdio Borges, sem ákváðu að leggja hjarta og sál í sitt eigið vínverkefni. Þau einbeita sér að gömlum vínekrum í Pinhão-dalnum í Douro, þar sem hver víngarður hefur sitt einstaka eðli. Með aðferðum eins og fóttroðningi berjanna og handtínslu, sameina þau lágmarks inngrip til að láta terroir-ið njóta sín.
Kaupin á Quinta da Manoella árið 2009 styrktu víngerðina enn frekar. Vínin, bæði rauð og hvít, endurspegla gæði, karakter og jafnvægi milli hefðar og nýsköpunar sem Douro-svæðið býður upp á.
-
Guru
5.669kr. Read more -
Manoella Douro
3.471kr. Read more -
Manoella Douro
3.582kr. Read more -
Manoella Rosé
3.412kr. Read more -
Pintas Character
5.340kr. Read more -
Pintas Douro
13.349kr. Read more -
Quinta da Manoella
13.349kr. Read more -
Vinha do Altar Reserva
2.782kr. Read more